Jæja það er
búið. 2013 bara komið. Greinilegt að tíminn líður hraðar með árunum.
Árið 2012 var gott ár fyrir the Kort family, og það verður áhugavert að sjá
hvað 2013 færir okkur.
Eftirfarandi er það sem helst stendur uppúr á árinu hjá okkur greint eftir
þemum en ekki tímaröð þó:
Nám og störf:
Já loksins loksins loksins kláruðum við námið, Kort hjónin urðu bæði
doktorara á árinu. Auja byrjaði með því að verja doktorsritgerðina og
útskrifast í maí og Gilli varði sína ritgerð í ágúst. Nám hefur verið stór
hluti af lífi Kortara enda hafa átta háskólagráður verið kláraðar í þeirra
sambúð (takk Lín). Haustönn 2012
var í fyrsta sinn í sögu Korthjóna þar sem hvorugt var skráð í nám. Björn Kort kláraði 3 bekk og vann best “third
grader in chess” í skólanum. Gússí kláraði pre-K og byrjaði í Kindergarten í
haust. Þegar Kortari númer tvö byrjaði í skóla var keypt ný taska og skólaföt
enda var gellan jákvæð og spennt að byrja. Hellarinn byrjaði svo á leikskóla í ágúst og það tók staffið
þar innan við tvær vikur að venja drenginn á snuð (Já við vorum bara búin að
reyna allar tegundir og trix í fokking ár) og koma honum í einn góðan og LANGAN
lúr á dag. Þvílíkur munur og guð blessi snuð.
University
of Minnesota var ekki tilbúin að sleppa af okkur hendinni því bæði fengum við
vinnu þar, dr Gísli sem AÐSTOÐAR prófessor við hjúkrunarfræðideildina og dr
Auja sem fyrirlesari hjá tölfræðideildinni. The daily commute breytist því
lítið og ekki skemmdi fyrir að Kris dreifari fékk líka vinnu hjá The U. Við
þrjú vinnum nú á innan við eins kílómetra radíus á campussvæðinu öll með fínar
skrifstofur, sumir eru með sérpantaða stóla meðan aðrir eru með glugga. Það
lítur svo út fyrir að háskólinn sé alveg til í að hafa okkur áfram í vinnu
þannig að hér gætum við verið í einhvern tíma í viðbót.
Fjölskyldan og ferðalög:
Björn Kort fór í fyrstu altarisgönguna sína við Kaþólskukirkjuna í mars
eftir að hafa farið í undirbúningsfræðslu sem því fylgir. Drengurinn hefur þó
tekið þá ákvörðun að vera ekki kaþóliki heldur sér hann sig sem einhverskonar
“lutheran” sem er ekki á móti “gay people”og styður jafnrétti fyrir ALLA.
Fannst honum kaþólikkarnir ansi old school þegar kemur að kynjahugmyndum um
heimilishald og hjónabandið. Við styðjum hann í því og höfum ákveðið að taka
ekki meiri þátt í störfum kaþólskukirkjunar hérna í USA. Gússí on the other
hand er spennt fyrir sinni fyrstu altarisgöngu því þá fær hún að vera í hvítum
“wedding dress”.
Í tilefni útskriftar í maí var ákveðið að
halda veislur, fyrst var haldin útskriftarveisla í Minneapolis í maí og svo
skellti Kort familían sér heim back to the old country, Gilli dvaldi í þrjár
vikur á Íslandi (einhver þurfti að vinna og skrifa þessa fjandans
doktorsritgerð) restin af familíunni var í sex vikur á gamla skerinu. Þar var
haldin sameiginleg skírnar- og útskriftarveisla fyrir Helga Kort, Auju og Kris.
Svo var slappað af í sumarbústöðum, keyrt um landið, hitt og leikið við vini og
fjölskyldu, gengið um landið, borðaður íslenskur matur, beðið eftir nóttinni og
haft rosa gaman.
Tónleikar og aðrir viðburði:
Fórum á Of Monster and Men í Apríl, geðveikt góðir tónleikar, skelltum
okkur á Tallest Man on Earth líka og höfðum gaman að. Fórum á Red hot Chili
Peppers og fundum góðu lyktina, fórum svo aftur á Of Monster and Men. Gilli,
Björn Sr og Jr skelltu sér líka á NFL leik. Gilli koma Bo Franz skemmtilega á
óvart með því að bjóða honum á Louis C. K. stand up.
Gestir á árinu:
Fyrstu gestir komu í janúar þegar Gunnar, Katarína og Elísa eyddu fyrstu
dögum ársins með okkur. Næstu gestir komu svo í maí til að vera viðstödd
útskrift, fyrst kom Vallarsettið ásamt Britney systu og svo mættu Palli og
Markús, einnig komu Húnfjarðarhjónin til að fagna útskriftinni hennar Kris. Það
var því margt um manninn hérna at the Ewing Mansion í maí. Stelpurnar komu svo
með okkur út aftur í júlí, Tommi frændi mætti líka og í ágúst kom Ágústa til að
vera viðstödd vörnina hans Gilla. Í september lok komu svo Vallarhjón aftur. Eins
og alltaf var gaman að hafa gesti.
Annað merkilegt sem átti sér stað á árinu
- Lifðum af einstaklega mildan vetur
- Deildum Agnesi Au pair á vorönn með vores nágrönnum Beggu og Bo, sem varð til þess að Auja gat klárað ritgerðina
- Lifðum af tvær PhD gráður og erum enn öll saman J
- Auja, Begga og Kris voru með í því að stofna Eyjafjallajökul- íslenskan saumaklúbb í Minneapolis
- Keyptum okkur imac, og þar með var safnið fullkomnað
- Börnin æfðu dans, soccer, blak og körfubolta
- Auja byrjaði í bootcamp
- Einhver (ir) horfðu á NFL, og töluðu og lásu um the NFL, go Vikes (nýkomnir í playoffs as we speak)!
- Vorum í geðveikt flottum Halloweenbúningum
- Héldum 18 manna Thanksgiving matarboð
- Tókum þátt í black friday shopping í fjórða sinn
- Gamall draumur Gilla að halda aðventulestur úr Aðventu Gunnars Gunnarssonar rættist með hjálp Mr. Fix it next door, “römm er sú taug” og allt það
- Bökuðum geðveikt margar smákökur, konfekt og tvivar sinnum lagköku ala Addi
- Einhver fjölskylduvinur (nefni engin nöfn byrjar á K.) keypti sér rándýrt sléttujárn í MOA.
- Hittum rektor HÍ, sumir í “eigin persónu” meira að segja...
- Fengum allskonar umgangspestir og annað eins viðbjóð en lifðum það af
- Keyptum trampólín
- Gilli spilaði handbolta af kappi og fór í keppnisferðalög um ameríku
- Gússí lærði og mundi nöfnin á öllum íslensku jólasveinunum
- Lifðum af fyrstu vinnandi önnina okkar, húrra húrra
- Einhverjir "frægir" hittu og töluðu við Phillip Phillips
- Sumir dreymdu um Phillip Phillips
- Margt annað skemmtilegt átti sér stað sem við annaðhvort gleymdum að taka myndir af eða pósta á facebook, það átti sér samt stað þrátt fyrir að það gangi gegn öllum eðlisfræðilögmálum
Árið 2013 leggst vel í the Kortfamily Björn mun verða 10 ára eða “a decade
old” sem er ansi töff. Gússí verður 6 ára sem er líka geðveikt töff og Helgi
Belgi mun entera “the terrible twos” sem hann er sosem byrjaður að taka prufur
af. Jey jey thank god for preschool. Í janúar verður farið í hina árlegu New
York kvennaferð og svo ætlar Gilli geð að eyða fimm dögum at the Boundary
Waters m.a. í finnskri saunu með vinum sínum. Planið okkar er að vera áfram
hérna í Minnesota, við höfum ákveðið að flytja til Íslands þegar það kallar
nógu mikið á okkur, en sem komið er hefur það ekki gerst (eða þá að við heyrum
svona illa). Eins og alltaf þá er
von á góðum gestum, þeir fyrstu sem eru búnir að bóka komu sína eru Íris og
Þórir Bergs ásamt börnum sem koma í lok maí, svo er von á Vallarhjónum, eins er
rumor að Magga Vaff og Mörður frá New York kíki í sveitasæluna í Minnesota í
júlí. Hver veit nema einhverjir fleiri ákveði að skella sér hingað. Íslandsferð 2013 er ekki á döfinni hjá
Kortfamilíunni, gæti þó verið að Björn Kort skelli sér einn í sumar annars
stefna Kortarar að WestCoast roadtrip í ágúst, þar sem m.a. Washington DC og
New York borgir verða skoðaðar. Gilli gæti líka kíkt á ráðstefnu í háskólabío
haust 2013, hver veit.
Kort familian et al. óskar fjölskyldu og vinum gleðilegs nýs árs
og þakkar fyrir hin gömlu með von um að hitta eða heyra í ykkur flestum á nýju
ári
Sayanora bitches!
Kortfamilían að ná í jólatréð
Best 3 grader in chess
Hressu börnin
Hluti af sambýlinu
Útskriftargengi
Gáttaþefur mætti á svæðið
Við skárum grasker í góðra vina hóp
Hluti af thanksgiving dinner liðinu
Gilli med das Kinder at the art fair