May 2, 2007

Bauni

Kortfamilían fékk góðar fréttir í vikunni. Vores danske ven Anders a.k.a baunin hringdi alla leið yfir hafið og tilkynnti að von væri á fleiri baunum í heiminn. Við samgleðjumst baunafamilíunni í baunaveldi með nýju baunina. Its about fokking time er það sem kom uppí hugann á Kortmeðlimum við tíðindin. Við vorum farin að hafa áhyggjur að almenn leti dana væri farin að hafa stórleg áhrif á meinta fjölgun en nei, Anders er loksins búin að afsanna að hann er ekki með öllu latur. Það verður bara gaman að sjá baunina þegar sá tími kemur. Kortarar senda baráttukveðjur til baunaveldis og við vonum að Anders nái því að nú þýðir ekkert annað þjónusta og meiri þjónusta við baunafrúnna næstu mánuði. Til lukku!!!

2 comments:

Ásdís said...

"nú þýðir ekkert annað þjónusta og meiri þjónusta við baunafrúnna næstu mánuði."
Heyr heyr
Baunafrúin

Anonymous said...

Hey til hamingju Ásdís og baun.
Gaman að frétta svona á amerískum fréttaveitum :)