Sep 28, 2007

Captain Jack Sparrow

B-Kort er ekki ólíkur foreldrar sínum að því leyti að þegar hann fílar eitthvað, þá eru engin takmörk. Hófsemi er orð sem Kortarar munu seint ná að tileinka sér. Drengurinn hefur nú í einhvern tíma, komið vel yfir ár, haft sérstakt dálæti af sjóræningjum. Það byrjaði allt með Kobba Kló úr Pétri Pan. Svo varð það sjálfur Captain Jack Sparrow . Nú hefur það verið þannig í dágóðan tíma að þegar B- Kort er kynntur fyrir nýju fólki þá segist hann heita Jack Sparrow. Á nýja leikskólanum gengur hann undir því nafni bæði hjá starfsfólki og börnum. Gaurinn er ekkert að flippa með þetta Sparrow æði hann segist ekki geta beðið eftir því að verða fullorðinn, safnað skeggi og síðu hári. Um daginn bað hann um hárlengingu. Þegar hann verður fullorðinn þá ætlar hann að fara til Jack Sparrowslands, berjast og drekka rom eins og ekta sjóræningi. Hann hefur tilkynnt Kortsettinu þetta og talar með tilhlökkun, hann ætlar að taka Ágústu litlu systur með en foreldrarnir eiga að bíða í flugvélinni á meðan (dont ask). Á meðan hann bíður eftir að fullorðnast lætur hann sér nægja að reyna líkjast Captain Jack Sparrow í öllu, hermir eftir göngulagi og leikur hann drukkinn. Seinustu vikur hefur hann til að mynda ekki farið úr jakka einum sem svipar til jakka goðsins. Einnig gengur hann um með Sparrow hatt, við þetta sett er gæinn svo í bláum gúmmítúttum. Óháð því hvort hitastigið er 30 gráður eða ekki þá fer Björn Kort ekki úr dressinu. Hann er bara flottastur og trúr sínu.
Björn Kort i dressinu

Í næstu viku fer Kortfamilían til Florida, ætlunin er að skoða Magic Kingdom en þar er eitthvað Pirates of the Caribbean dæmi. Það besta er að B-Kort hefur ekki hugmynd um hver ferðinni er heitið, það verður því bara gaman að fylgjast með tappanum.

P.S. dugnaður Kortara er þvílíkur, komið nýtt albúm Ágústa Kort, flottar myndir þar.

11 comments:

Anonymous said...

Jii en falleg börn. Björn orðinn ekkert smá "fullorðins" og Ágústa algjör fegurðardís.

Mér hlýnaði um hjartaræturnar við að skoða .. :)

B said...

Viljiði gjöra svo vel að fara að koma með þessa yndislega fallegu stúlku heim, ég þarf nauðsynlega að passa hana og knúsa.

Plús að kenna henni að leika í Barbie, dúkkó og playmo.

kveðja Bergþóra

Anonymous said...

Hann er náttúrulega ekkert venjulega kúl þessi gaur!!

Anonymous said...

Ég er Jack Sparrow Tómas - Bjössi er líka Jack Sparrow.
Tómas er svo sjálfmiðaður að hann er móðgaður yfir því að það hafi ekki staðið neitt um hann í færslunni. Ég meina hann er nú einu sinni aðalfrændinn.

Anonymous said...

Rosalega var gaman að skoða myndir af dömunni - falleg er hún. Petrún Anna á hauskúpukjól sem hún þarf að koma til Ágústu við fyrsta tækifæri - hún gæti þá klæðst honum í ferðinni miklu til Sparrows-lands. Góða ferð til Flórída.
Kveðja úr Garðabænum

Anders said...

jamen Jack og Björn's fædre ligner jo også hinanden, så man kan da godt forstå drengen kan leve sig ind i rollen.

Anonymous said...

hrikalega gaman að fá loksins að sjá einkverjar myndir af henni:) hún er fullkominn og Björn er náttúrulega bara flottastur í bláu túttunum:)
kv. stína og co

Anonymous said...

Flottar myndir af frk. Ágústu Kort, amman er alsæl þessa flottu stelpu svo á hún svo flottan stórabróður hann Björn Kort

Anonymous said...

Þið eruð öll frábær!

Anonymous said...

Þið eruð öll frábær!

Anonymous said...

Possibly the most amazing blog that I read all year! halter neck wedding dresses!?! WII Accessories Louboutin Shoes Christian Louboutin Shoes Bridesmaid Dresses