Sep 18, 2007

Gesta rapport

Amman komin og farin. Seinustu dagar hafa farið í chill með ömmu pönk sem kíkti á okkur i nokkra daga. Amman sem er hjúkrunarfræðingur eins og stór hluti af því góða fólki sem tengist Korturum, er alltaf á vakt. Á innan við sólarhring frá komu, var gellan búin að greina B.Kort með kviðslit (inguinal hernia). Sú sjúkdómsgreining var svo staðfest af sérfræðingunum á Fairview childrens hospital. Drengurinn þarf því að fara í aðgerð á næstu vikum, gæinn var ekkert rosalega sáttur með það en um leið og hann heyrði af Jack Sparrow verðlaununum sem í boði eru þá breyttist allt. Nú getur gaurinn ekki beðið eftir því að komast undir hnífinn. Amman sá ekkert athugavert við aðra Kortara í þessari ferð. Spurning þó hvort að nýtilkomin en mjög svo hröð tölvu- og netfíkn hafi truflað dómgreindina þar.
Annars áttum við góða og rólega daga, lítið um verslunarráp og annað eins rugl, meira um gönguferðir og afslappelsi. Korthjón skelltu sér á tónleika á laugardagskveldinu að hlusta á Devendra Banhart. Góð stemmning þar. Kortarar þakka ömmunni fyrir innlitið, þangað til næst..


Amman sá um að Kort börnin væru þrifin og flott

p.s. ótrúlegur kraftur í Korturum, búnir að laga nýju Kort-börn síðuna.

7 comments:

Anonymous said...

Guði sé lof fyrir Kort-ömmuna! Segi ekki meir!

Jú annars - frábært framtak hjá ykkur með síðu barnanna - ég var bara farin að halda að ég fengi ekki að sjá fleiri myndir af börnunum!

Anonymous said...

amman þakkar fyrir sig og er strax farin að hlakka til næstu ferðar til ykkar, sérstaklega finnst henni hún eiga flott ömmubörn.

Anonymous said...

Djöfull eruð þið kúl!!

Ágústa hefði nú átt að heita Gíslína- svo lík er hún pabba sínum.
Vonandi batnar Birni kviðurinn áður en langt um líður :-D

Anonymous said...

Já voða krúttleg systkyn, en hvað er málið með litinn á baðvatninu??

Hellings batakveðjur úr 101 til Björns litla.

Anonymous said...

Okkur finnst þið rosa sæt systkini.

Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn til okkar í sveitina.

Kveðja,
Dreifbýlistútturnar

Ally said...

Auja. Með fullri virðingu fyrir heimasíðutöktum þínum, þá er ég ekkert rosalega imponeruð yfir þessum 4 myndum af nýja barninu á síðunni. Og ég tek það fram að ég beið í 4 daga með þetta yfirdrull til að gefa þér færi á að bæta við myndum áður en ég færi að rífa kjaft. En það virðist ekki bóla á nýjum myndum. Þannig að get your act together woman!

Kort said...

hey, það er meira en fjórar nýjar myndir, nýr bakgrunnur, nýr texti. Hvað er þetta mar?
Baðvatnið já er grænt, en ekki vegna þess að börnin væru svo skítug heldur er þetta náttúrulegt litarstuff sponsorað af börnum náttúrunnar, heavy flott