B. Kort a.k.a the dude er sjö ára í dag, tíminn flýgur. Litli drengurinn okkar sem var nú bara lítil í 6 vikur verður bara flottari og flottari með hverju árinu. The Dude verður í skólanum í dag og svo ætlar hann að skella sér á Chuck E. Cheese með Gússí og Þór. Afmælisveisla með bekknum verður svo á laugardaginn.
Drengurinn er ansi spenntur fyrir hvað sjöunda árið á eftir að færa honum en árið lofar góðu. Fullt af ferðalögum m.a. til Íslands, roadtrip um USA með Tomma frænda í ágúst og svo chill í Florida í desember með stelpunum úr hafnarfirði. Já, það verður nóg að gera. Einnig er á döfinni að læra/nenna að reima skó.
Bjöllinn er enn með sama mottóið og fyrir ári síðan, "ekki klæðast fínum fötum eða löngum fötum". Lifi stuttermaföt!!!
Til lukku með daginn Björninn okkar.
4 comments:
tillykke fra sne klædte Danmark.
Kæri Björn
Innileg til hamingju með daginn og árin sjö!
Markúsi hlakkar mikið til að sjá þig um páskana - þá færðu líka afmælisgjöfina þína.
Njóttu dagsins
Bestu kveðjur úr Garðabænum
Til hamingju með 7 ára afmælisdaginn elsku flottasti UNO kóngur ever.....knús á ykkur öll,
Kveðja úr Danaveldi
oops!
Post a Comment