Oct 22, 2009

Námsmannafréttir

Smá update héðan frá landi hina frjálsu og hugrökku, við höfum ákveðið að taka sambúðina á næsta level. Nú gerum við hér um bil allt saman, meðal annars að skrá bloggið.

Seinustu vikur hafa liðið ansi fljótt hérna at the Kort Mansion. Góðir gestir komið og farið aftur, amma Pönk átti góða daga hérna með okkur, gott chill og einnig skemmdi ekki fyrir að amman gat hjúkrað the Dude sem var með svínaflensuna á sama tíma. Eftir það komu hinar hressu kellurnar úr hafnarfirði í nokkra góða daga án kreppu. Búðir voru þræddar og systurnar kláruðu Twin cities maraþonið í æðislegu veðri. Mjög gott allt saman. Óvíst er með næstu gesti en mögulega koma foreldrar Kris around thanksgiving.

Haustið er komið og aðeins farið að kólna. Það hefur x2 snjóað en horfið jafnóðum. Haustið er mjög fallegt hérna. Laufblöðum rignir niður og mikil litadýrð. Síðustu helgi fórum við og náðum okkur í grasker til að skera út fyrir Halloween. Það var frábær ferð og veðrið var dásamlegt. Helgina þar á undan fórum við í Children´s museum sem var mjög skemmtilegt og börnin ánægð með það. Það eru líka frábærir dagar framundan. Á morgun eru Þór og Björn að keppa í Flag-football í Metrodominu (http://www.msfc.com/index.cfm) sem er heimavöllur Minnesota Vikings í Ameríska fótboltanum. Það verður á efa mjög skemmtilegt.

Drengirnir í graskerastuffinu

Þór verður svo sjö ára á mánudaginn. Hluti af familíunni mun taka út gleðina í skemmtigarðinum í MOA á sunnudeginum. Það er góð stemning í gangi fyrir því, sérstaklega hjá Kris og Bo.

Helgina þar á eftir er svo hin frábæra Haloween helgi. Gleði og glaumur. Búið er að skrá alla nema nýjustu geðhjúkkuna í 5k
hlaup um morguninn þar sem málið er að hlaupa í búningum og í stað vatnsstöðva eru nammistöðvar. Á meðan liðið hleypur mun Kris undirbúa GitarHero partý og baka pönnukökur fyrir svanga hlaupara, pönnukökugerðar hæfileikar píunnar munu víst vera svaðalegir. Um kvöldið fara svo drengirnir að trick or treat.

Korthjón og Gússí í góðum fíling

Svo er líka planið að mæta í skólann og vinna þau verkefni sem bíða okkar þar. Þetta hefst allt saman hjá okkur nemunum, alltaf nóg að gera í skólanum. Geðfrúin hefur aukið kaffidrykkjuna í 9 expresso á miðvikudögum og gamla góða mottóið "you can sleep when you´re dead" lifir góðu lífi. Þetta er allt gaman og við erum öll í kærleikanum hérna og það skiptir öllu.

Bo að kenna Kris rétta Módeltakta

4 comments:

Hrefna Díana said...

Mikið er gaman að sjá hvað sambúðin gengur vel, enda engin furða þegar tekið er inn í dæmið á hvaða andlegu level-i þið eruð :Þ
Auðvitað ætlar Kris ekki að hlaupa því henni er annt um líf sitt.. las það í fréttunum um daginn að það ku vera mjög hættulegt, það dóu víst 4 þarna um daginn í landi tækifæranna í einhverju maraþoni :/ Auja ræður líkalega ekki við sig og hleypur með geðinu en vonandi lifa þau og komast í pönnukökurnar..
Það er ekki furða þó Kris sé góður pönnukökubakari enda fengið gott uppeldi hér í Njarðvíkinni í vetur hjá honum Herði :)
Þið skuluð líka undirbúa ykkur fyrir burst þar sem Bó, Kris og Þór eru snillingar í GuitarHero, og líka alveg mega töff while they're at it :D
P.s. Kristín og Björgvin... mikið hrikalega eru þið svöl í vetrar outfit-inu :)
Sakna ykkar...

Gússí said...

Vantar ekki að setja Geða í lopa? Mér finnst rétt að þið verðið öll í stíl.

Kort said...

Ju rett það er verið að vinna í því. Vallarfrúin er að prjóna akkúrat núna

Anders said...

på tiden at i skriver noget nyt....godt at høre i har det godt.

Savner jer

Anders