Góð stemmning hérna at the Kort Mansion. Ja við erum ekki búin að drepa hvort annað still going strong. Nýtilkomna sambúðin er að skríða yfir fyrsta mánuðinn pælið í því?? Flott mál.
Annars höfum við verið ansi heppin með það að skemmtilegt fólk hefur ákveðið að heiðra okkur með nærveru sinni á haustmánuðum. Þökkum það góðum netsmellum Icelandairs. Anyhow Alda Lóa og dætur þær Auður og Sóley komu hingað í byrjun September og chilluðu með okkur. En háskólinn byrjaði ekki fyrir en 7 september þetta árið. Við náðum því að hvíla okkur með þeim mæðgum enda ekki vitlaust svona rétt fyrir haustátökin. Næsti gestur er svo amma pönk sem væntanleg er á föstudaginn og ætlar hún að vera í heila viku í góðu yfirlæti hérna hjá okkur. Svo eru þær kellur frú Constanza og Britney sys væntanlegar í byrjun Október í sirka viku. Þannig að það verður nóg að gera hjá okkur að chilla með gestum ásamt því að sinna þessu blessaða námi okkar allra.
Annars eru allir námsmennirnir byrjaðir í skólanum og einhverskonar rútína að færast yfir mannskapinn, B Kort og Þór eru heavy uppteknir í skólanum einnig eru þeir byrjaðir í fótbolta og svo verdur fyrsta flag football æfingin í þessari viku. Bo er fótboltaþjálfari drengjana en hann kemst víst ansi langt á því að vera evrópskur. Á meðan Bo þjálfar stendur Kris á hliðarlínunni með heimabakaðar múffur og minglar við foreldranna. Þetta lið er að skora þvílikt hátt í social skills hérna í US and A.
Frúin og Gússí eru líka hressar. Gússí gúss eins og við köllum hana núna er farin að tala meira eftir að Sóley tók hana í einkatíma og nú er gellan líka farin að máta koppinn og klósettið. Allt í gangi þar.
Maður vikurnar er þó tvímælalaust BO senior Kort en sá gamli síungi fyllir í fjórða tuginn á fimmtudaginn nk. Hvað gerist þá er óráðið.
Sóley og Gússí í góðum fíling
2 comments:
hvað er þetta - er fólk hætt að lesa þetta frábæra blogg?
En gaman að heyra fréttir af ykkur!
Maður var farinn að halda að nýja liðið væri svona erfitt að allur ykkar tími færi í fundi og geðhjálp. Það er gott að heyra að allt gengur vel og gaman að heyra að fólk er að koma í heimsókn. Svolítið skrítið að vera ekki að koma til ykkar, þetta var orðinn góður vani.
Allt gott að frétta úr Garðabænum, Markús er að koma sterkur inn í skólanum, stundum óþarflega líkur pabba sínum.... Petrún Anna er að líkjast móðurinni og farinn að stjórna leikskólanum....
Bestu kveðjur
Unnur og co
Post a Comment