Jan 12, 2007

Áfangar

Rútínan er að byrja. Fríið að taka enda. Á þriðjudaginn byrjar skólinn. So it begins... Þangað til chill og veikindi. Já Geð-Kortið er veikur. Dúddi með berkjubólgu, liggur fyrir og bíður eftir að pensílinið kikki inn. Seinustu dagar hafa verið ljúfir, einstaklega ljúfir. Við byrjuðum á því að kveðja verkfræðinginn á sunnudaginn. Sá gestur fær hrós frá Kort fjölskyldunni fyrir að vera einstaklega gestgjafavænn. Greinilegt að þar er á ferðinni vel upp alinn drengur sem veit hvað kurteisi þýðir. Þó svo hann eigi það til að detta út og keyra í hringi þá líkar okkur vel við hann. Daginn eftir eða á mánudaginn mætti Draumurinn svo aftur eftir ferðalag til San Francisco. What happend in San Francisco stays in San Francisco. Segjum ekki meir um það. Eftir að Draumurinn hafði fyllt sig upp af varningi frá Victorias Secret var hann ready að fara heim til the old country á þriðjudaginn. Þannig fór um sjóferð þá. Nú eru allir gestir farnir- bara gone. Við eigum ekki von á neinum fyrr enn í fyrsta lagi í mars. Þar sem Icelandair fljúga ekki næstu tvo mánuði til Minneapolis. Við lifum það af, í versta falli þurfum við að talast við. Annars er gott að hafa tíma til að byrja í og einbeita sér að skólanum. B-Kort spyr þó á hverjum degi hvenær framsóknardragið hann Tommi frændi kemur. Við eigum von á þeim eðalgaur í lok apríl ásamt trúuðu guðmóðurinni og ömmu pönk. Þá verður tekið á því.
Stærstu fréttirnar eða áfanginn öllu heldur er að á morgun (eða í dag) 12 janúar eru 8 ár síðan Geð-Kortið lagði frakkanum, hætti að vera andsetinn, andfélagslegur, hættulegur og líklegast hundleiðinlegur (samkvæmt nánustu fjölskyldu). Já 8 ár (endalaus tala, tákn fyrir eilífðina, enda gömul sál á ferð, líklegast Indjáni í fyrri lífum eða jógi, annaðhvort, pottþétt). Við fögnum ákvörðun Geðsins um að prófa að breytast og ákveða að vera hress og opin fyrir 8 árum síðan. Guð veit að það hefur borið ávexti í lífi hans og fleiri. Vei vei,
Eins óskum við Palla a.k.a the díler og þá kannski sérstaklega fjölskyldu hans með 10 árin sem hann fagnar í dag-Páll þessu áttum við aldrei von á og það veistu!! Til lukku kallar! Við erum ánægð með ykkur og elskum ykkur skilyrðislaust- keep up the good work or die miserable and alone.

11 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með morgundaginn elsku bróðir og gangi þér vel að hrista bólguna af þér. Þessi veikindi eru nú orðin ansi mikil - þú þarft að slá Dr Doða við og fá sláturbólu á góðan stað.

Anonymous said...

Gísli minn innilega til lukku með áfangann!
Við hérna á klakanum erum alveg voðalega stolt af ykkur þarna úti í landi tækifæranna!
Farið vel með ykkur :)

Anonymous said...

Til hamingju Gísli!

Anonymous said...

Til hamingju með áfangan Gísli, vonandi losnar þú fljótt við þessa bólgu. Það er ótrúlegt hvað hefur áunnist á þessum tíma ....

Anonymous said...

Já til lukku Gísli, verð að skjóta því með í tilefni dagsins að sjaldan hef ég sé neinn mann eins hræddan og daginn sem Gísli kom að heimsækja Auju á Sólvallagötuna back in the days, en sú heimsókn varði í einhverja mánuði, svo þegar hann loksins fór þá tók hann Auju bara með sér og hefur ekki sleppt henni síðan. Ákveðinn maður þar á ferð,já og láttu þér batna, það er betra.

Unknown said...

Hvað segirðu Eva var hann Gísli svona hræddur? Þar er líklega komin skýringin á afhverju ég hélt að þau væru byrjuð saman um leið og hann fór að sjást á Sóló. Til hamingju með 8 árin, Auja hefur væntanlega sagt þér að þetta er allra, allra versta tímabilið í edrúmkennskunni, verður ekki verra en níunda árið.

Anonymous said...

Til hamingju kæri bróðir og láttu þér batna

Ally said...

Til hamingju með daginn Gísli, vel gert!

Anonymous said...

Til hamingju með 8 árin Mr. Kort glæstur ferill þar á ferð!

Ally said...

Bloggaðu Auja!
Mér leiðist

Anonymous said...

Til hamingju Gísli. Og til hamingju Auja og til hamingju við öll hin sem elskum þig og umgöngumst. Ég fæ hroll við tilhugsunina um hrokafulla frakkaklædda gaurinn, þótt ég hafi sloppið við að hitta hann. Hvernig væri heimurinn ef þú hefðir ekki breyst... Er búin að panta miða til ykkar í sumar.