Nov 29, 2006

Almenn kurteisi

Slæmt ástand hér á bæ. Korthjónin liggja í valnum fyrir einhverji ógeðispest. Læknadrusslan hún Aðalheiður ber ábyrgð á þessu að okkar mati. Hingað mætti hún galvösk til að fagna stórafmæli sínu með okkur. Við gáfum henni gjöf og hún gaf okkur einhverja bakteríu eða vírus.. ekki alveg viss hvort var. Allavegna við erum ekki til stórræða þessa dagana. Í þessu tilefni ný regla fyrir gesti... ekki koma með neinar hélvítis umgangspestir frá the old country.
Við getum þó huggað okkur með það að ektamaðurinn áðurnefndra Allýar a.k.a Þórólfur tók ábyrg og kom ekki með Noro niðurgangspestina allræmdu.. Við þökkum honum fyrir það.....

7 comments:

Anonymous said...

Shit!

Frú Kort - þá er eins gott að þú berir ekki þennan óþverra yfir hafið í för þinni til "the Old country" - við viljum enga Bush-skitu hingað - thank you!

Ally said...

Mér finnst illa að heiðri mínum vegið á opnum vef. Jafnvel svo að mér sé ekki sýnd tilhlíðileg virðing.
En rosalega er Þórólfur hress þessa dagana. Hann er svo hress að ég hef aldrei hitt jafn hressan mann. Hann er meiriháttar. Meiri-háttar.

Unknown said...

Þetta er aldeilis ekki gott að heyra, varðandi veikindin. Ég hef legið á bæn dag og nótt síðan ég heyrði af veikindum ykkar.

Ég hef líka beðið mikið fyrir því að fólk fari að sýna Allý þá virðingu sem hún á skylið.

Munið, guð getur gert kraftaverk. Kraftaverk!

Anonymous said...

vona að ykkur batni - amma pönk er annars á leiðinni með heita bakstra og líknandi hendur. Enginn er betri en hún þegar kemur að því að líkna sjúkum - Geðkortið hefur þetta allt frá henni.

Ally said...

Og Auðbjörg, ég man ekki eftir því að þú hafir kvartað undan epiglottitnum mínum þegar ég var svo hás að ég gat eigi mælt og þú gast blaðrað út í eitt.......

Kort said...

hehehehehheh-- Hey þetta er allt í lagi Allý. Okkur er að skána- kannski var þetta ekki þér að kenna. Kannski var þetta komið frá liðinu í Suðrinu.. En við erum sammála. Okkur finnst Þórólfur lang--lang lang skemmtilegasti strákur sem við höfum hitt. Hann er alveg einstakur. Gísli getur bara ekki hætt að tala um hann

Anders said...

TUDEFJÆS, TUDEFJÆS hvad sker der !!!! skal jeres starkels gæster havde skyld for alt slemt der sker for jer ?????
Det er jeres immunforsvar som er blevet svækket af al den MC'D og Pepsi Maks.