Aug 21, 2006

Skemmtiferð

Það er alltaf gaman þegar allt er gott.... og sem betur fer þá er allt gott hjá the Kort family í dag. Áttum góða helgi með nýja leigjandanum henni Huldu a.k.a msn supersnakker. Fórum í zoo og á Red Lobster þar sem við fengum dýrindismáltíð ásamt móðurlegri og góðri nærveru frá þjónustukonunni. Eitt sem við fílum rosa vel hérna í bushlandi er hin ótrúlega þjónustulund sem þjónustufólk sýnir þegar mar á í viðskiptum við það. Alveg hreint magnaður skítur... manni líður eins og mar hafi eitthvað að segja eða mar skipti máli. Næstu dagar fara í msn og internet afeitrun á gestinn en við áætlum að það taki um 10 daga svona eins og hefðbundin afeitrun. Við erum alltaf þakklát fyrir að fá að hjálpa en það er hornsteininn í lífi okkar Kort hjóna. B-Kort er ennþá á leikskólanum og hann er svalur. Drengurinn heimtar þó að fá veiðistöng og trommusett. Chao

5 comments:

Anonymous said...

Kæru Kort-hjón!
Ég sé að leigjandinn hefur komist í das computer! Hver klikkaði á vaktinni!
Annars líkar mér stórvel þessi hressilega framsetning á texta frá Bushlandinu. Þetta blogg myndi ná nýjum víddum og hæðum ef ein stórgóð frú - nefni engin nöfn - myndi drita nokkrum myndum hér inn!
Thank you :)

Anonymous said...

Sammála síðasta ræðumanni - öll góð hótel eru með myndir á heimasíðunni þannig ef þið ætlið að halda ykkur í bissness þá verðið þið að bæta úr þessu hið snarasta.

Maggavaff said...

Alveg hreint yndislegt segi ég nú bara. Yndislegt að þið skulið vera að blogga.

Iceland Today said...

"manni líður eins og mar hafi eitthvað að segja eða mar skipti máli"

ég held að þetta ógleymanlega komment fari á listann yfir flottustu komment jarðar ásamt:

"ef það sé eitthvað gert, þá er alltaf ráðist á okkur"

sem við munum eftir úr Rokk í Reykjavík. Bjarni Móhíkani 12 ára að púa vindil og vera með félagsvitund :)

Guð blessi þig auja

Anonymous said...

World Of Warcraft gold for cheap
wow power leveling,
wow gold,
wow gold,
wow power leveling,
wow power leveling,
world of warcraft power leveling,
world of warcraft power leveling
wow power leveling,
cheap wow gold,
cheap wow gold,
buy wow gold,
wow gold,
Cheap WoW Gold,
wow gold,
Cheap WoW Gold,
world of warcraft gold,
wow gold,
world of warcraft gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold
buy cheap World Of Warcraft gold w3g6f7ps