Sep 24, 2006

Chill

Stemningin er alltaf góð-- Frúin uppgötvaði á föstudaginn innanhúsar -hlaupabraut sem er í gyminu, vá hvað það er cool. Í framtíðinni ætti að vera hægt að planta litla kortinu+ ferða -dvd-inu þar á meðan settið tæki góða æfingu..
Við erum búin að vera í chill ástandi í dag og gær. Geð-kortið er með flensu og er því eins og fólk með flensu. Hjúkrunar-hæfileikar eða öllu heldur skortur frúnnar koma vel í ljós þegar geðið verður veikt. Mæginin skelltu sér á Mr Mc sem B-Kort fílar í botn. Það er eins gott að Bootcamp-arnir sendi okkur planið því að okkar mati þá eru aðeins tveir möguleikar í boði. Nr 1 að bíða þangað til fituprósentan nær 40% (eftir nokkur ár) og koma aftur heim í cargo. Nr 2 að taka upp hin andlegu vopn sem okkur voru gefin og massa það í ræktinni, mæta í extreme-ið og líta á skutlurnar sem kenna okkur þar sem harðstjóra sem ekki gefa afslátt..... naumast eru það nú fyrirmælin!
Kort liðið sem ekki er þekkt fyrir að gefast upp, nema þegar við græðum á því, hefur ákveðið að velja síðari valkostinn. Með einum fyrirvara þó--- Geð-kortið mun aldrei meðan hann er í hjónabandi, sem í hans tilviki er kaþólskt og því til eilífðar, klæðast hvítum þröngum selfossbol. Hulda, þú getur því gefið einhverjum öðrum bolinn!

5 comments:

Anonymous said...

aumingja Gísli - þú átt að vera góð við hann frú Kort.
Við erum í Krika og það hefði ekki verið verra að hafa ykkur með.
Hvað verður um litla kortið ef hann étur bara Mc og horfir á DVD - er ekk til junior hlaupabraut þarna?

Ally said...

Uhm... ég myndi vilja sjá Geðkortið í hvítum þröngum bol.
Sorrý Auja

Ally said...

Nei djók. Ég var að koma heim úr kvennaferð og er geðveikt andleg. Kannski svolítið flippuð en geðveikt andleg.

Anonymous said...

Ja hérna hér! Erum við að tala um að Geð-kortið sé að umturnast yfir í FM-hnakka með öllu tilheyrandi! Strípur, helmassaður og þröngir ermalausir bolir! Hvar endar þetta????

Anonymous said...

og hvað svo - eru þau nú bara eitthvað að hnakkast og hætt að blogga. Komið ykkur frá speglinum og að tölvunni - það er alveg sama hvað þið reynið þetta Selfoss útlit fer ykkur ekki.