Oct 2, 2006

Helgin- maraþon

Góð helgi hjá Kort familiunni. Chill helgi. Geð-Kortið heiðraði bókasafnið með nærveru sinni á meðan hin Kortin skelltu sér m.a. í bíó fyrir 4 fxxx dollara total. Þegar það er svona ódýrt í bíó þá munar ekki um það að labba út þegar yngra kortið nennir ekki meiru. Á sunnudagsmorguninn byrjaði litla Kortið í sunnudagskóla á vegum kirkjunnar. Þessi sunnudagskóli byggir á Montessori stefnunni með dash af kaþólskustöffi. B-Kort var mjög ánægður með skólann, sérstaklega leist honum vel á kastalann eða modelið af Jerúsalem. Annars er gæjinn greinilega farinn að skilja það sem sagt er við hann. Stundum svarar hann á ensku.. litli karlinn. Í dag var svo maraþon hérna í minneapolis sem hefði verið mjög gaman að taka þátt í og hver veit, kannski einhvern daginn. Frúin tók þó þátt í einu góðu maraþoni í dag en þannig er að ein af uppáhalds TV-stöðvunum okkar var með SVU- Law & Order maraþon í dag-- pæliði í því, mar gæti sem sagt horft á strait í 2 sólarhringa... sem betur fer eru góð auglýsingahlé þannig að mar nær að sinna léttum heimilisverkum, taka á móti póstsendingum og svara símtölum frá Íslandi-- geðveikt erfitt líf hérna.

3 comments:

Anonymous said...

Gott að Björn varð ekki andsetinn í þessum sunnudagaskóla - ég man ekki betur en það hafi þurft að hlaupa með hann út síðast. En það var náttúrulega í kirkju mótmælenda svo það er ekki að marka.

Anders said...

Hvad sker der nu for jer !!!!!!! Søndagsskole stakkels knægt.
Hvad bliver det næste ??? skal han også omskæres ???
Næ nej hold knægten væk fra de religiøse fanatikere.
Lad ham dog lege om søndagen skal knægten ikke havde fri !!!!!!
Nu stopper I to, bare fordi I er blevet sådan nogle knæ liggende hellige slaver, så skal knægten sku da ikke straffes. Næ nej Gud findes ikke,det ved en hver. Han er opfundet til at skræmme folket og holde dem som slaver for de hvide, rige præster !!!!
Björn løb mens du kan løb fra søndagsskolen eller hold dig i det mindste for ørene!!!!

Anonymous said...

Svei mér þá - sé þig í anda á fullu með ryksuguna í annarri - hárið uppsett - símtólið í hinni - þeysast um íbúðina í auglýsingahléunum ásamt því að taka á móti póstsendingum! Er þetta ekki farið að líta út eins og ágætis pósthús þarna í Minní?
En mikið hrikalega hefði ég verið til í svona SVU:Law and order - ultra marathon! Vá geggjað!